Fréttir

Slökkviliðið í heimsókn hjá 3. bekk

Slökkviliðsmenn komu í skemmtilega heimsókn til okkar í 3.bekk í gær. Þeir fræddu nemendur um forvarnir og eldvarnir á heimilum og ræddu um mikilvægi þess að kunna bregðast rétt við ef eitthvað kemur upp á. Nemendur fengu einnig bæklinga, bækur og endurskinsmerki að gjöf.

Dagur íslenskrar tungu

Í dag, 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, héldu átta nemendur úr 7. bekk Kópavogsskóla af stað í snjónum yfir á leikskólann Kópahvol, þar sem þau lásu bækur fyrir leikskólanemendur.

Dagur gegn einelti

9. nóvember fögnuðum við baráttudegi gegn einelti og nýttum við tækifærið til að leggja áherslu á mikilvægi vináttu, virðingar og góðra samskipta. Vinabekkir hittust og áttu saman notalega stund þar sem nemendur unnu að ýmsum verkefnum, meðal annars púsli og spilum. Með þessu fengu þau tækifæri til að eiga samskipti, vinna saman og kynnast enn betur.

Fjölgreindaleikar

Á morgun, þriðjudag 20. október og á miðvikudag 21. október, verða fjölgreindaleikar haldnir í Kópavogsskóla.

Námskynning fyrir foreldra nemenda í 1. bekk

Það eru spennandi tímamót að hefja grunnskólagöngu og því viljum við eiga góða kvöldstund þar sem við förum yfir veturinn, gæðum okkur á léttum kvöldverði og fáum fróðleg og gagnleg innlegg frá fólkinu sem kemur að námi og velferð barnanna ykkar.

Útivistartími

Skólabyrjun haustið 2026

Nú hallar sumri og senn líður að skólabyrjun.

Skrifstofa skólans er lokuð vegna sumarleyfa

Skrifstofa skólans er lokuð vegna sumarleyfa og opnar aftur mánudaginn 10. ágúst kl. 9:00.

Skólaslit 2026 - 9. júní

Þann 9. júní verða skólaslit og úrskrift í Kópavogsskóla. Nemendur í 1.-9. bekk mæta á hefðbundnum tímum að morgni til og eru í skólanum til hádegis.

Vorskóli Kópavogsskóla verður 20. og 21. maí

Vorskóli Kópavogsskóla verður dagana 20. og 21. maí frá klukkan 14:00 - 15:30